
Ævintýraboxið eru nýir sjónvarps- og netþættir um útiveru, hreyfingu og náttúru. Þættirnir verða sýndir á ÍNN á föstudagskvöldum og svo hér á netinu.
Í Ævintýraboxinu kemst áhorfandinn því næst hvernig er að taka virkan þátt í vægast sagt ótrúlegum ævintýrum, auk þess sem hann fylgist með framhaldssögu um hóp sem kallar sig 5tindar en þeir klifu hæsta tind í hverjum landshluta og fóru einnig á tind Mont Blanc. Í fyrsta skipti í sögu Íslands fóru óreyndir áhugafjallgöngumenn með atvinnutökubúnað á tind Mont Blanc til að fanga þann leiðangur.





