Surf.is
Skelltu þér á dagsnámskeið þar sem allur búnaður er innifalinn (Bretti, ól, galli, skór og hanskar). Farið verður í öll grundvallaratriði sem viðkemur tækni, búnaði, aðstæðum og öryggi. Síðan fá allir að spreyta sig á öldunum og enda daginn með stæl! Ef þú ert að spá i að skella þér á námskeið þá þýðir ekkert að bíða, heldur skrá sig og tryggja sér pláss.
- Verð 15.900 kr.
- Reyndir leiðbeinendur
- Allur búnaður innifalinn, besta sem völ er á tryggir hámarsk þægindi
- Eftir námskeið ertu sjálfkraffa skráð(ur) á póstlista surf.is þar sem þú getur hoppað með í laus námskeiðasæti fyrir 5.000kr eða leigt þér búnað fyrir vægt verð. Einnig tryggir þú þér þáttökurétt í ýmsum uppákomum eins og hinum árlega surf degi, þar sem surf, grill og kaldur er fríkeypis!
- Surfnámskeið fyrir vinahópa -
Hægt er að óska eftir lokuðu námskeiði fyrir vinahópa en þá þarf að lágmarki fimm manns.
Lengd námskeiðs: 5-7 tímar
Surfstaðir: Þorlákshöfn, Sandvík ca 50km frá Reykjavík.
Erfiðleikastig: Fjórir af fimm.
Innifalið: Akstur fram og til baka, kennari, búnaður, kakó og kleinur.
Taka með: Hlý föt, handklæði, sundföt og góða skapið.
Eina sem þarf að gera er að fylla út skráningarformið okkar
Bendum á að flest stéttarfélög niðurgreiða námskeið af þessu tagi amk til helminga.
Skrá sig og ekki bíða!
kv Surf.is





